Ég ætla bara skammlaust að plögga sjálfa mig hérna:
Íslenskir tónlistarmenn heiðra Tom Waits
Tónleikar til heiðurs tónlistarmanninum Tom Waits eru fyrirhugaðir í ágúst nk. en meðal þeirra sem að tónleikunum standa eru þekktir íslenskir tónlistarmenn og leikarar. Tónleikarnir fara fram í Íslensku óperunni þann 23. ágúst næstkomandi. Meðal þeirra sem fram koma verða Björn Hlynur Haraldsson, Daníel Ágúst, Krummi, Sigtryggur Baldursson, Ólafur Darri Ólafsson, Magnús Jónsson, Pétur Ben, Höskuldur Ólafsson og Sigríður Eyrún.
Hljómsveitin sem sér um undirleik hefur fengið nafnið The bad livers and the broken hearts band en hana skipa Pétur Ben, Sigtryggur Baldursson og Frank Hall.
Miðasala verður í miðasölu Íslensku óperunnar og um netfangið twtonleikar@gmail.com en miðaverð verður 2.500 krónur.
kv
Sigga 7BI
fimmtudagur, 2. ágúst 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Ekkert sma svekkt ad missa af thessu... ert svo cool Siggi litli!!!
Break a leg,
Linda
Skrifa ummæli