mánudagur, 6. ágúst 2007

25 dagar!

Það kom uppástunga um að hafa eina bloggsíðu fyrir hvern bekk svo hægt sé að ræða hvert bekkjarpartý fyrir sig. Auðvitað er fólki frjálst að opna sínar síður og ég gæti þá sett linkinn á þá síðu hérna.
En við skulum nú samt ekki gleyma að þetta er reunion fyrir allan árganginn og mæta á:

SPORTBARINN FYRIR OFAN ALLT Í EINU Í JAFNASELI FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 31.ÁGÚST 2007!!!!!

15 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nei ég vil fá að vita hvar öll bekkjarpartýin eru hehehe. Annars má fólk nú alveg vera duglegra við að að melda sig hérna inni....

Kv. Ólöf

Nafnlaus sagði...

Trui varla ad thad seu i alvorunni 15 ar sidan vid vorum i Seljaskola, drottin hvad vid erum ordin gomul. Verdur einhver med bekkjarparty i minum bekk??? Thid verdid nu bara ad taka mikid af myndum og setja inna siduna fyrir okkur sem erum svo oheppin ad bua erlendis og missa af thessu. A einhver ekki lika meira af gomlum myndum til ad setja inn... Sigga, Audur thid eigid nu alveg slatta.

Goda skemmtun, eg verd med i anda ;-)

Linda Dögg 10-HÞ (held eg)

Nafnlaus sagði...

ég á nokkrar myndir en vantar bara skanner... en voðalega finnst mér lítið um að vera hérna miðað við þarna fyrir tæpum 5 árum, þá voru allir að kommenta og svona..
Hvar eru allir núna?

Nafnlaus sagði...

Nákvæmlega Anna... koma svo allir hérna með eitt komment hehe

Nafnlaus sagði...

Já ég er sko ekki að kaupa það hvað við erum orðin gömul.Og ég hélt að við værum bara 18,en við erum nú víst orðin aðeins eldri.Þetta verður geðveikt gaman saman,kveðja Magga Linda 10-BB

Nafnlaus sagði...

Sælir gömlu Selskælingar : )
Ég vildi bara vekja athygli á því að það eru ansi margir sem hafa ekki fengið neinar upplýsingar um þessa endurfundi þann 31. Hvernig er það eru allir bekkir með bekkjaparty? Verða allir látnir vita af þessu eða á fólk bara að spreða fréttunum út í þeirri von að allir frétti þetta? Annars ætla ég mér að mæta og hlakka rosa til en hef engar upplýsingar fengið fyrr en seint í gærkvöldi og þá margir sem ekki vita af þessu ennþá. Hvað gera bændur í því? : )
Kveðja
Rakel Hafberg

Nafnlaus sagði...

Hæhæ Rakel.

Ég náði í bekkjarlista í júlí og hafði samband við einn í hverjum bekk. Þeir sem sáu um bekkina voru. Anna María um 10-HÞ. Anna Sig um BB. Ólöf Snædís um GJ. Þórunn Bolla um JÞ. Anna Jóna um HG. Hulda Gunnars um JM. Hafdís BJ. Þannig að það ættu allir sem voru í þessum árgangi að frétta af þessu.
Síðast þegar ég vissi þá gekk vel að ná í flesta. Annars væri gott ef "bekkjarfulltúrar" myndu láta vita hvort búið sé að ná í alla???? Ég á eftir að ná í einn í GJ en það hlýtur að koma :o)

Kv. Ólöf Snædís.

Nafnlaus sagði...

Hehe ég meina fulltrúar ekki túrarar :o)

Nafnlaus sagði...

Mér finnst þetta frábært framtak hjá ykkur skvísur. Frétti af þessu frá Lindu Rós en hvað með gamla HG - bekkinn? Ætlar einhver að mæta? Tek undir með Rakel, auðvitað mætir maður - hvað annað! Og, myndirnar - je dúdda hvað við vorum þroskuð og fullorðin eitthvað :)

Kveðja, Anna Rún.

Nafnlaus sagði...

Sæl aftur : )

Ég er að spá í að gefa mig fram til að halda bekkjarpartý ef það er enginn annar úr mínum bekk sem heitir væntanlega HG (held ég) Þarf bara að fá staðfestingu um að það er enginn annar sem bjóði sig fram og svo læt ég vita aftur hér. Jeminn hvað ég hlakka til að sjá ykkur öll ; )

Kv
RH

Nafnlaus sagði...

Ánægð með þig Rakel!! Þá eru komin bekkjarpartý hjá BB.HÞ.JM og HG. Allavega sem ég veit um svo þetta er allt að koma vonandi því það er ekki svo langt í þetta :o)


Kv. Ólöf

Nafnlaus sagði...

Smá vesen á mér, en er einhver með eimail, síma eða fullt nafn hjá Önnu Jónu???

Kv RH

Nafnlaus sagði...

Jæja þá er það pottþétt með forparý hjá mér 31. fyrir HG bekkinn. Galtalind 11 Kópavogi kl 18:00 Endilega komið þessu til skila til HG-inga
C U

Rakel

Nafnlaus sagði...

Það gengur eitthvað erfiðlega að ná sambandi við minn bekk. En þetta ætti að hafast þegar nær dregur. Ég er einnig að vinna í bekkjarpartý málum. Ekkert komið á hreint ennþá.
Kær kveðja Hafdís 10 BJ

Nafnlaus sagði...

Sæl öll
láta vita að ég ætla að mæta. er á landinu og búin að taka frí svo nú getur maður aldeilis rifjað upp æskuna. Man samt ekki eftir að spýta í hring ? Takk fyrir boðið Magga Linda. Ég var að rekast á minningarbækur frá 1987 þar sem flestir í bekknum eru búnir að "gera í minningarbókina". Verst að ekki er til form þar sem hægt er að sýna þetta ? Því ekki nenni ég að mæta með bækurnar til að sýna ykkur þetta...