föstudagur, 20. júlí 2007

Hulda úr 10.JM sendi mér þessa mynd...agalega fínar :-)
Þið megið öll senda mér myndir á siggaeyrun@gmail.com og ég hendi þeim hérna inn. Finn mér kannski 5 mínútur um helgina og bý til myndasíðu sem ég set sem tengil hérna á síðuna...þangað til hendi ég þeim bara á hverja færslu.

Ég er orðin sjálfskipaður ritari endurfundanna og bulla því bara áfram á þessu bloggi.

Um leið og "nefndin" er búin að ákveða stað mun ég setja það hérna inná síðuna...
En þangað til bíðum við hin bara spennt.

Hulda stakk uppá því að fólk myndi setja einhverjar upplýsingar um sjálft sig í kommentin.
Sjá komment frá henni í fyrstu færslu...

Haldið annars áfram að láta berast að þessi bloggsíða sé komin upp.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æðisleg mynd af JM stelpunum :) Svona eruð þið allar í minningunni.. hehe :)
Og okkur fannst við svo fullorðin á þessum tíma.. það er bara fyndið :)
Kv. Anna Sig. 10-BB

Nafnlaus sagði...

Haha, frábær mynd :D Ég skal sko senda þér nokkrar góðar ;)

Væri ekki annars sniðugt að þú gerðir eina færslu sem heitir "Öppdeit" eða "Kynning" eða eitthvað og við svöruðum í kommentum þar undir?

Nafnlaus sagði...

mig langar að vita eru margir sem komast þennan dag, vegna þess í mínum bekk eru margir ennþá í sumarfríum. Kveðja Hulda

Nafnlaus sagði...

jæja ég fann nokkrar myndir þarf að koma þeim í smá vinnslu áður en ég get hent þeim inn en vildi óska að ég ætti fleiri, annars var ég að pæla áttu enn þennan hatt aldís ekki smá sætur ef svo er það mana ég þig til að koma með hann í vinnunna skvísa ´haha, annars ,eru ekki flestir komnir úr sumarfríi svona seint 31 ágúst eða, skólar byrjaðir og svona, annars svaka gaman af þessu öllu vonandi kemst maður. er kennurum boðið

Seljaskoli sagði...

Það er ekki hægt að finna dagsetningu þar sem allir komast.
Það getur verið vont að hafa þetta á haustin þegar skólarnir eru nýbyrjaðir og svona.
Það er líka búið að bóka stað :-)
Geri "öppdeit" færslu.

Nafnlaus sagði...

ha ha, ég á nokkrar fyndnar af strákunum í mínum bekk í náttkjólum, er þó ekki viss um að þeir vilji sjá þær hér inni ;o)

b.kv.
Anna Jóna

Nafnlaus sagði...

Anna Jóna, ég mana þig til þess að senda þær inn :D