laugardagur, 21. júlí 2007

AFTUR I HUDDIÐ!

Anna María fór á stúfana í gær og reddaði okkur roooooosalegum díl á hverfispöbbnum í gamla húddinu okkar.
Þannig að gleðskapurinn verður:

Á SPORTBARNUM Í JAFNASELI FÖSTUDAGINN 31.ÁGÚST FRÁ KL.20-?
Við verðum með staðinn útaf fyrir okkur og það verða mjög góð tilboð á barnum.

Fyrir þá sem ekki átta sig á hvaða staður þetta er þá er hann á annari hæð fyrir ofan sjoppuna sem hét (eða heitir?) Allt í einu. Krónan er þarna núna og Sorpa (klassi...) og það var eitthvað dekkjaverkstæði þarna allavegna einu sinni.

Svo förum við bara með 14 eða 111 niðrí bæ...

Svo var ég að spá....ef fólk vill að ég setji linka á síður hér til hliðar þá er það ekkert mál. Kannski ef einhver er með bloggsíðu eða fyrirtæki eða eitthvað bara.....

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hahaha, en frábær staðsetning! Og 14 eða 111 eru ekki lengur til :Þ Held að nr. 3 keyri þarna núna...

Nafnlaus sagði...

Djöf..... er þetta spennandi,, er búin að grafa upp hvítu gallabuxurnar og kaupa mér 1L af DavidOff rakspíra, and by the way man einhver hvað bekkurinn minn hét, eina sem ég man er Seljakaup, Ískóla og landi...kv Davíð úr 10XX :)

Seljaskoli sagði...

landi? ojjjj í hvaða hverfi ólst þú eiginlega upp?
ég þyrfti einmitt að grafa upp gulu gallabuxurnar mínar, LAgear skóna og Levi's stuttermabolinn og Benetton ilmvatnið. Hitti reyndar einn í gær sem sagðist vera viss um að Óli R og Óli H myndu mæta í leðurjökkunum sínum...hahahhahaha
Spes að muna ekki hvað bekkurinn manns hét...ég man reyndar að bekkurinn ykkar hét einu sinni 6.BS er það ekki? löng færsla eða?

Nafnlaus sagði...

Þessi föt eru náttla komin aftur í tísku.... DavidOff lyktin klikkar ekki Davíð :o)